Forsala miða á bikarleikinn endar í hádeginu á föstudaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Forsala miða á bikarúrslitaleikinn næstkomandi laugardag er komin á fullt en hægt er að nálgast miða hjá Lindu í Palóma milli kl. 10-12 og 14-18 alla virka daga. Þeir sem vilja geta einnig hringt í Lindu í síma 777-3322 og nálgast miðana eftir öðrum leiðum. Athugið að forsölunni lýkur á hádegi á föstudag.

Miðarnir kosta 2.000 krónur í forsölu en 2.500 á leikdegi og gilda bæði á úrslitaleik kvenna og karla. Með því að kaupa miðana hér í heimabyggð rennur allur ágóðinn beint til UMFG en miðar keyptir á leikdegi skiptast í fernt á milli liðanna.

Verslum heima og sýnum stuðning í verki og styðjum stelpurnar okkar til sigurs í bikarnum!