Forsala á fyrsta leik Grindavíkur og Stjörnunnar

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Það má reikna með að það verði fullt hús í Ásgarði annað kvöld þegar fyrsti leikur Grindavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum Domino’s deildar karla fer fram. Þeir sem vilja tryggja sér miða í tíma geta gert það á Miði.is hér. Leikurinn hefst klukkan 19:15 en húsið opnar klukkan 18:00 og hleypt verður inn í sal klukkan 18:20. Grindvíkingurinn og Stjörnuliðhlaupinn Bryndís Gunnlaugsdóttir mun grilla Stjörnuborgara frá klukkan 18:10.

Frítt fyrir 15 ára og yngri.