Fjögur fræknu í beinni útsendingu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Undanúrslit Lengjubikarsins, Fjögur fræknu, verða í beinni útsendingu á Sport-TV í kvöld. Undanúrslitin fara fram í Stykkishólmi og mætast Snæfell og Grindavík kl. 20:30. Þjálfari Njarðvíkur spáir því að Grindavík tapi í kvöld.

„Ég tippa á að það verði dunkarnir tveir úr Vesturbænum sem mætast í úrslitaleiknum,” sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur við Vísi. Einar Árni er þarna að tala um jafnaldrana og æskufélagana Inga Þór Steinþórsson, þjálfara Snæfells, og Benedikt Guðmundsson, þjálfara Þórs.

Tindastóll situr í neðsta sæti Dominos-deildarinnar en hefur bitið frá sér í þessari keppni. Öll hin liðin í úrslitunum, Snæfell, Grindavík og Þór, eru meðal efstu fjögurra liðanna eftir fyrstu sjö umferðirnar. Tindastóll mætir Þór í fyrri undanúrslitaleik dagsins sem hefst klukkan 18.30.

„Tindastóll er lið sem fór seint af stað og eins og svo oft áður þá eru þeir að styrkjast jafnt og þétt. Ég hefði alveg verið tilbúinn að mæta þeim í deildinni fyrir löngu síðan. Ég á þá í desember og veit að ég mun fá þá í sínum besta gír. Þetta verður langt frá því að vera eitthvað auðvelt fyrir Þórsarana,” sagði Einar Árni.

„Ég held að báðir leikirnir verði járn í járn sem er svolítið saga tímabilsins. Það hafa fleiri leikir en færri verið jafnir fram á síðustu sekúndur. Ég sé ekki fyrir mér einhverja stórsigra,” segir Einar en hvað með uppgjör Snæfells og Grindavíkur sem mætast klukkan 20.30.

„Hólmararnir eru hrikalega erfiðir á heimavelli. Það er eins og vinstri höndin á Nonna sjái stærri körfu þar. Þeir hitta alltaf svakalega vel þar og eru bara gríðarlega erfiðir heim að sækja,” sagði Einar Árni og er þarna að tala um Snæfellinginn Jón Ólaf Jónsson sem hefur spilað afar vel í vetur. Snæfell er annað félagið sem fær Lengjubikarúrslitin á heimavelli en Keflvíkingar voru í sömu stöðu árið 2002 og unnu þá titilinn.

„Ég held að heimavöllurinn eigi eftir að hjálpa pínulítið í þetta skiptið en ég yrði samt ekkert hissa ef Grindavík tæki sigurinn,” sagði Einar Árni en Grindavík vann 110-102 sigur á Snæfelli þegar liðin mættust í 27 þrista leik í Grindavík í október.

Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 16.00 á morgun en Grindvíkingar gætu þar spilað sinn fjórða úrslitaleik í þessari keppni á síðustu fimm árum. Þór hefur aldrei unnið stóran titil í meistaraflokki en Tindastóll vann hins vegar þessa keppni fyrir þrettán árum.