Fimleikamaraþon laugardaginn 13. maí

FimleikarFimleikar, Íþróttafréttir

Maraþon Fimleikadeildar UMFG verður haldið laugardaginn 13. maí frá klukkan 9:00 – 19:00. Iðkendur í elsta hóp ætla að vera í fimleikum í 10 klukkustundir og munu safna áheitum til að fjármagna æfingabúðir. Þau munu ganga í hús dagana 5. – 10. maí og vonum við að þau fái góðar móttökur.

Íþróttasalurinn verður opinn fyrir gesti þann 13. maí á milli klukkan 14 og 16 þar sem hægt verður að fylgjast með iðkendum við æfingar.