Dýrmæt stig í hús í Dominosdeildum beggja kynja um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Helgin var grindvískum körfuknattleiksliðum góð en mikilvæg stig komu í hús í Mustad höllinni, bæði hjá strákunum og stelpunum. Strákarnir riðu á vaðið á föstudaginn þar sem þeir unnu flottan baráttusigur á Stjörnunni, 78-65, og stelpurnar fylgdu svo í kjölfarið á laugardaginn þar sem þær sigruðu Keflavík, 75-66.

Sigurinn hjá stelpunum var afar dýrmætur í baráttunni um 3.-4. sætið í deildinni en eftir þennan sigur er Grindavík í 3. sæti í þéttum pakka með Val og Keflavík. Whitney Frazier átti mjög góðan dag fyrir Grindavík, skoraði 24 stig og tók 13 fráköst og var valin Lykilmaður umferðinnar fyrir vikið.

Karfan.is fjallaði um leikinn.

Sigurinn hjá strákunum var ekki síður mikilvægur en þeir eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Fréttaritari Grindavík.is ritaði umfjöllun um leikinn sem birtist áður á karfan.is:

„Grindavík og Stjarnan mættust í Mustad höllinni í kvöld í leik sem einkenndist af mikilli baráttu og lágu stigaskori. Staðan eftir 1. leikhluta var 16-15 og hálfleikstölur 37-32. Leikurinn var fast leikinn og mikið um pústra og pirring, þá sérstaklega Stjörnumegin. Grindvíkingar fóru langt á baráttunni í kvöld, unnu frákastabaráttuna 48-37 og allir leikmenn sem komu inná skiluðu mikilli baráttu og góðu framlagi.

Stjörnumenn réðu illa við Chuck Garcia í teignum í kvöld. Í hvert skipti sem hann fékk boltann voru 2-3 varnarmenn mættir, og þá helst ekki til að spila vörn heldur til að berja á kappanum, enda tók hann 16 víti í leiknum. Hann setti að vísu ekki nema 10 og þar af fóru tvö forgörðum þar sem dómarar leiksins mátu það sem svo að hann hefði stigið á línuna, en áhorfendur mátu það sem svo að um svokallaðan tittlingaskít hefði verið að ræða og voru ekki sáttir við smámunasemina hjá dómurunum. Chuck passar væntanlega betur uppá bífurnar í næsta leik.

Grindvíkingar lögðu mikla áherslu á að stoppa Justin Shouse og hengdu marga leikmenn á hann eins og frakka. Hinn ungi (1998) Ingvi Þór Guðmundsson fékk að spreyta sig á því hlutverki í 2. leikhluta en uppskar 3 villur á 36 sekúndum og settist beint aftur á bekkinn. Þá tók Kristófer Breki Gylfason (1997) við sama hlutverki og skilaði sínu virkilega vel. Justin virtist láta þessa stífu vörn fara töluvert í taugarnar á sér. Hann fann ekki taktinn í sóknarleiknum (3/14 í skotum) og endaði svo á því að yfirgefa völlinn með 5 villur.

Justin settu engu að síður met í þessum leik en hann er nú sá leikmaður sem gefið hefur flestar stoðsendingar í sögu efstu deildar, 1394 talsins, og sló þar með met Jóns Arnars Ingvarssonar. Stoðsendingarnar urðu reyndar ekki nema 2 í leiknum og það dugði til, en Justin hefði eflaust valið annað leik til að bæta þetta met ef hann hefði mátt ráða. Fyrir þennan leik höfðu Stjörnumenn unnið 4 leiki í röð en Grindvíkingar virðast vera með gott tak á þeim í Mustad höllinni.

Lokatölur leiksins urðu 78-65 og Jóhann Ólafsson þjálfari Grindavíkur hafði orð á því eftir leik að sóknarleikur liðsins hafi á köflum verið hálf tilviljanakenndur. Það endurspeglast í stoðsendingunum hjá liðinu en þar var miðherjinn Chuck Garcia með þær flestar, 4 talsins. Chuck og Jón Axel voru atkvæðamestir hjá Grindavík með 22 og 25 stig og þá tók Jón Axel einnig 9 fráköst.

Hjá Stjörnunni áttu flestir leikmenn afar dapran dag. Coleman var stigahæstur með 14 stig og 9 fráköst en sóknarleikurinn var í tómu tjóni hjá liðinu. Þeir settu 4 þrista í 22 tilraunum, sem verður að teljast í lægra lagi fyrir lið með skyttur eins og Shouse og Tómas Tómasson innanborðs. Þristarnir voru svo sem ekki að detta hjá Grindavík heldur, aðeins 2 í 15 skotum, sem gerir alls 6 þrista í 37 skotum í leiknum sem er ekki tölfræði sem áhorfendur í Grindavík eru vanir.

Grindvíkingar mjakast með þessum sigri nær sæti í úrslitakeppninni, en þeir eiga erfiðan leik á mánudaginn gegn Keflvíkingum í Sláturhúsinu.“