Dröfn Einarsdóttir og Ólafur Ólafsson voru í dag kjörin íþróttafólk ársins 2017 í Grindavík, við hátíðlega athöfn í Gjánni. Dröfn er einn af lykilleikmönnum meistaraflokks kvenna í knattspyrnu, en hún lék 21 leik í deild og bikar í sumar og hefur verið fastamaður í U17 og U19 landsliðum Íslands. Ólafur var einn af burðarásum Grindavíkurliðsins sem fór alla leið í úrslit Íslandsmótsins gegn KR síðastliðið vor og hefur einnig leikið með A-landsliði Íslands á árinu.
Tilnefndir sem íþróttamenn ársins 2017, í stafrófsröð:
Aron Snær Arnarsson – tilnefndur af júdódeild UMFG
Andri Rúnar Bjarnason – tilnefndur af knattspyrnudeild UMFG
Enok Ragnar Eðvarsson – tilnefndur af Hestamannafélaginu Brimfaxa
Hjálmar Hallgrímsson – tilnefndur af Golfklúbbi Grindavík
Ingólfur Ágústsson – tilnefndur af hjólreiðdeild UMFG
Ólafur Ólafsson – tilnefndur af körfuknattleiksdeild UMFG
Tilnefndar sem íþróttakonur ársins 2017, í stafrófsröð:
Andrea Ásgrímsdóttir – tilnefnd af Golfklúbbi Grindavíkur
Dröfn Einarsdóttir – tilnefnd af knattspyrnudeild UMFG
Embla Kristínardóttir – tilnefnd af körfuknattleiksdeild UMFG
Katrín Ösp Eyberg Rúnarsdóttir – tilnefnd af hestamannafélaginu Brimfaxa
Sandra Dögg Guðlaugsdóttir – tilnefnd af reiðhjólanefnd UMFG
Allar deildir UMFG, ásamt Golfklúbbi Grindavíkur og Hestamannafélaginu Brimfaxa tilnefndu íþróttamenn og íþróttakonur ársins úr sínum röðum. Valnefndin samanstendur af stjórn UMFG og frístunda- og menningarnefnd. Það voru þau Þórunn Alda Gylfadóttir fyrir hönd frístunda- og menningarnefndar og Sigurður Enoksson formaður UMFG sem veittu viðurkenningarnar. Kjörinu stjórnaði Erlingsdóttir, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og myndataka var í höndum Siggeirs F. Ævarssonar.
Grindavík.is óskar verðlaunahöfum og öllum þeim sem tilnefndir voru til hamingju með árangurinn á árinu. Nánar verður fjallað um valið og aðrar viðurkenningar sem veittar voru við þetta tilefni á nýju ári.