Dósasöfnun 3. flokks drengja í dag

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Í dag kl. 17:30 munu drengir í 3. flokki í knattspyrnu ganga í hús og safna flöskum og dósum en þeir eru á leið til Spánar á Costa Blanca mótið í sumar. Athygli er vakin á því að ef fólk verður ekki heima en vill gefa þá er hægt að setja pokann út fyrir lóðamörk. Ef um er að ræða töluvert magn er gott að láta vita í síma 694-6805 eða 864-6075.