Einn af efnilegri leikmönnum Grindavíkur í knattspyrnu, Daníel Leó Grétarsson, hefur verið seldur til norska liðsins Ålesund. Daníel, sem fæddur er 1995 og því aðeins 19 ára gamall, hefur verið í stóru hlutverki hjá Grindavík undanfarin sumur en hann lék alla leiki liðsins í 1. deildinni í sumar og alla nema einn sumarið 2013. Þá lék hann sex leiki í úrvalsdeild 2012. Þá hefur hann einnig leikið 10 leiki með U19 ára landsliði Íslands.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en vonandi fær Grindvík sanngjarna greiðslu fyrir sitt uppbyggingarstarf. Það er alltaf sárt að horfa á eftir góðum leikmönnum fara frá félaginu en þetta eru vissulega skref uppá við fyrir Daníel og vonandi að hann haldi áfram að vaxa og dafna sem leikmaður og óskum við honum alls hins besta á nýjum vettvangi.
Morgunblaðið greindi frá:
,,Grindavík og norska knattspyrnufélagið Aalesund komust í gærkvöld að samkomulagi um kaup Norðmannanna á Daníel Leó Grétarssyni, varnarmanni Grindavíkurliðsins, sem er nýorðinn nítján ára gamall.
Daníel var í stóru hlutverki hjá Grindvíkingum í sumar en hann hefur spilað 43 af 44 leikjum þeirra í 1. deildinni undanfarin tvö ár. Þá lék hann sex leiki með þeim, aðeins 16 ára gamall, í úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum og skoraði eitt mark. Hann var jafnframt fastamaður í U19 ára landsliði Íslands sem lék í milliriðli Evrópukeppninnar síðasta vor og á 10 leiki að baki í þeim aldursflokki.
„Ég á eftir að fara út og ganga endanlega frá mínum málum, veit ekki alveg ennþá hvenær það verður gert, en mér líst mjög vel á félagið og bæinn og það er afar spennandi að fara þangað,” sagði Daníel við Morgunblaðið í gærkvöld, eftir að félögin höfðu samið sín á milli ásamt Ólafi Garðarssyni umboðsmanni.”