Búningasala hjá körfuboltanum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Sala á búningum hjá körfuknattleiksdeildinni verður í dag, mánudaginn 5. október, frá kl 17:30-18:30 í Gjánni
Búningurinn kostar 10.000- kr og sokkar eru lika seldir á 1000- kr og þarf að staðgreiða vörurnar við pöntun. Þá vekjum við athygli á að stuðningsmenn Grindavíkur geta keypt stakar treyjur í fullorðinsstærðum en treyjurnar kosta 5.000- kr. Kjörið tækifæri til að græja sig upp gulan og glaðan fyrir veturinn!