Grindvíkingar gengu í morgun frá samningum við nýjan leikmann þegar Brynjar Ásgeir Guðmundsson stakk niður penna í Gula húsinu. Brynjar sem er 24 ára og kemur frá FH getur leikið í flestum stöðum í vörn og miðju á og á að baki fjölmarga leiki með yngri landsliðum Íslands.
Við bjóðum Brynjar velkominn til Grindavíkur
Fótbolti.net greindi einnig frá:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson gekk í morgun í raðir Grindavíkur frá FH og hann mun því leika í gula búningnum í Pepsi-deildinni í sumar.
Brynjar Ásgeir hefur spilað flestar stöður á vellinum með FH undanfarin ár en aldrei náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu í einni stöðu. Hann vildi fá stærra hlutverk í öðru liði.
Hann fékk því leyfi hjá félaginu til að færa sig um set í byrjun mánaðarins og hefur nú samið við Grindavík.
Hinn 24 ára gamli Brynjar er fjölhæfur leikmaður en hann getur leyst allar stöður í vörninni og spilað á miðjunni.
Brynjar Ásgeir er uppalinn FH-ingur en hann hefur skorað sex mörk í 56 deildar og bikarleikjum með liðinu á ferli sínum. Hann á einnig átta Evrópuleiki að baki.
Á sínum tíma lék Brynjar með öllum yngri landsliðum Íslands og meðal annars tvo leiki með U21 árs landsliðinu.
Grindavík endaði í 2. sæti 1. deildar í sumar og leikur því í Pepsi-deildinni á komandi sumri.