Breytingar á leikmannamálum hjá báðum meistaraflokkum Grindavíkur í körfunni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvíkingar byrja árið á stórtíðindum í leikmannamálum þetta árið. Rachel Tecca kemur ekki til baka úr jólafríinu í Bandaríkjunum, en hún var þegar búin að kveðja á instagram svo að þessar fréttir ættu ekki að koma mjög á óvart. Þá hefur Maggi Gunn leikið sinn síðasta leik fyrir Grindavík en bræðurnir Jón Axel og Ingvi Guðmundssynir snúa aftur frá Bandaríkjunum. Hér að neðan má lesa fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksdeild UMFG um málið:

„Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar öllum landsmönnum og konum gleðilegs nýs árs og byrjar árið með fréttabombum. Það er okkur mikið ánægju efni að tilkynna að bræðurnir Jón Axel og Ingvi Guðmundssynir hafa snúið til baka frá Bandaríkjunum og munu spilað með liði Grindvíkinga það sem eftir lifir þessa móts. Það vita það allir sem vita vilja að Jón Axel er orðin þekkt stærð í körfubolta hér á landi en kannski færri sem þekkja til Ingva en þar er mikið efni á ferðinni. Báðir munu þeir styrkja okkar lið gríðarlega og það er alltaf gaman þegar heimamenn snúa til baka.

Hinsvegar hafa körfuknattleiksdeildin og Magnús Gunnarsson komist að sameiginlegri niðurstöðu um að hann hafi lokið leik með Grindavík. Ástæðan er persónuleg fyrir Magga og vill Körfuknattleiksdeildin þakka Magga þennan stutta tíma sem hann dvaldi hjá okkur. Það er klár eftirsjá í Magga fyrir okkur og þó að tími hans hjá okkur hafi ekki verið lengri en raun ber vitni þá skilur Maggi eftir sig góðar minningar fyrir okkur og er það klárlega ósk okkar að honum vegni vel hvar sem hann endar.

Þá var ákveðið stuttu fyrri jól að Rachel Tecca myndi ekki snúa til baka til Grindavíkur eftir jól og hefur verið gerður samningur við nýjan leikmann fyrir kvennaliðið. Sú heitir Kristina King og lék háskólabolta með Richmond háskóla en fyrir áramót lék hún í Rúmeníu þar sem hún skoraði rúm 16 stig í leik og tók tæp 7 fráköst. Hún er alhliða leikmaður og eins og alltaf með erlenda leikmenn eru miklar væntingar bundnar við hana. Pappírsvinna fyrir hennar hönd hófst fyrir jól og er reiknað með henni snemma í næstu viku. Fleiri eru fréttirnar ekki að sinni frá Grindavíkinni og vonandi verða þær ekki fleiri heldur, nema þá góðar!

Stjórn Kkd-Umfg.“