Björn Lúkas valinn júdómaður ársins í Grindavík og Reykjanesbæ

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson var ekki eingöngu kjörinn júdómaður ársins hjá UMFG heldur var hann einnig valinn Júdómaður Reykjanesbæjar 2011 en hann hefur æft með báðum þessum deildum. Valið var kunngjört á báðum stöðum á gamlársdag.

Björn varð tvöfaldur Íslandsmeistari unglinga í júdó. Á þessu keppnistímabili hefur hann unnið öll mót í sínum aldursflokki og er tvöfaldur Norðurlandameistari unglinga í júdó. Þá hann hann tvo Íslandsmeistaratitla í brazilian jiu-jitsu.