Björn Lúkas keppir í MMA 6. maí

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingurinn og bardagakappinn Björn Lúkas Haraldsson verður í hópi fjögurra Mjölnismanna sem keppa á MMA kvöldi í Færeyjum þann 6. maí næstkomandi. Björn er afar reynslumikill í ýmsum bardagaíþróttum þrátt fyrir ungan aldur en hann var valinn íþróttamaður Grindavíkur árið 2012 fyrir árangur sinn í Taekwondo og Jiu jitsu. Björn er margfaldur Íslandsmeistari í báðum þessum greinum sem og júdó og þá hefur hann einnig keppt í hnefaleikum. Björn Lúkas mætir í þessu einvígi Håvar Hobbesland (1-1) frá Frontline Academy í Noregi.

MMA Fréttir greindu frá.