Bardagakappinn og Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson keppir þessa dagana á heimsmeistaramótinu áhugamanna í MMA í Bahrain. Það eru engar ýkjur þegar við segjum að Björn hafi farið mjög vel af stað á þessu móti en hann hefur keppt fjórum sinnum á fjórum dögum og klárað alla sína bardaga í 1. lotu. Hann er því kominn í úrslit sem fara fram á laugardaginn.
Hægt er að fylgjast með mótinu í gegnum Bahrain Sports appið, nánari upplýsingar á Facebook-síðu Mjölnis.