Í gær var skrifað undir samning við nýjan yfirþjálfara yngri flokka UMFG í knattspyrnu. Það var unglingaráði sönn ánægja að tilkynna að Grindvíkingurinn Benóný Þórhallsson, Binni, muni taka við því starfi. Á Facebook síðu deildarinnar var Binni borðinn hjartanlega velkominn aftur heim til Grindavíkur eftir að hafa verið hjá Sindra á Höfn í Hornafirði sem yfirþjálfari yngri flokka síðustu 2 ár.
Deildin býður Binna velkominn til starfa.
Í framhaldinu hefst töflugerð fyrir komandi vetur og er gert ráð fyrir að æfngar hefjist aftur í næstu viku. Það verði auglýst betur þegar taflan er klár.
Unglingaráð.
Meðfylgjandi mynd af undirskrift samninga. Ragnheiður Þóra formaður unglingaráðs og Binni.