Atvinna – Vallarstjóri (starfmaður við íþróttamiðstöð)

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni til að starfa við íþróttamiðstöðina (vallarstjóra). Helstu verkefni vallarstjóra eru  að sjá um umhirðu á íþróttavöllunum og hafa umsjón með Hópinu.

Leitað er að einstaklingi  sem hefur;
–    Góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
–    Vinnuvélaréttindi.
–    Er laghentur og getur sinnt minni háttar lagfæringum.
–    Getur unnið sveigjanlega vinnutíma.
–    Góða hæfni í mannlegum samskiptum,
–    reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
–    þekkingu í skyndihjálp 
–    hreint sakavottorð

Vakin er athygli á því að  ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is.
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar í síðasta lagi 12. október 2018