Aron Snær valinn í júdólandsliðið

Judo Íþróttafréttir, Judó

Aron Snær Arnarsson, júdókappi hjá UMFG hefur verið valinn í íslenska júdólandsliðið. Aron, sem er 16 ára gamall, er Íslandsmeistari í -90 kg flokki, 18 ára og yngri. Aron Snær mun um næstu helgi keppa með landsliðinu á Norðurlandamóti í Svíþjóð. Þar mun hann keppa í sínum flokki og í -90 kg flokki, yngri en 21 árs.

Við óskum Aroni til hamingju með landsliðssætið.