Grindavík tekur á móti Haukum í Röstinni á morgun, laugardag, í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna. Láki á Salthúsinu verður klár með súpu og brauð á sannkölluðu bikarverði klukkan 13:00 til að hita upp og koma mönnum í gírinn fyrir leikinn. Leikurinn hefst klukkan svo klukkan 15:00 og hvetjum við alla Grindvíkinga til að mæta og fylla stúkuna af gulum og glöðum stuðningsmönnum. Sýnum stelpunum stuðning í verki og bikarinn heim!
Áfram Grindavík!