Fyrsti titill fótboltasumarsins kom í hús í gær þegar stúlkurnar í 5. flokki urðu Faxaflóameistarar en þær unnu Breiðablik í hörkuleik, 3-0. Sjö lið voru í B-riðli A-liða og fór Grindavík taplaust í gegnum riðilinn. Þær unnu 5 leiki og gerði 1 jafntefli, og enduðu með markatöluna 21-4.
Glæsilegur árangur hjá þessum efnilegu fótboltastelpum!