Njarðvíkingurinn Daníel Guðni Guðmundsson snýr aftur á kunnulegar slóðir í haust en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og kvenna í körfunni. Daníel er öllum hnútum kunnugur hér í Grindavík en hann lék með meistaraflokki karla hér á árum áður og hóf svo sinn þjálfaraferil sem þjálfari meistaraflokks kvenna veturinn 2015-2016. Árangur hans með liðið vakti mikla eftirtekt og var hann í kjölfarið ráðinn þjálfari uppeldisklúbbsins í Njarðvík sem hann þjálfaði í tvö tímabil.
Við bjóðum Daníel velkominn til starfa á ný hjá Grindavík.