Íslandsmeistararnir hefja leik í kvöld á Ljósanæturmótinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Reykjanes Cup Invitational mótið í körfubolta karla mun verða haldið í kringum Ljósanæturhelgina líkt og undanfarin ár. Mótið verður leikið á þremur dögum, dagana 29. til 31. ágúst. Fjögur lið eru skráð til leiks en það eru Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Snæfell. 

Fyrstu leikirnir verða í kvöld, miðvikudaginn 29. ágúst í íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut þar sem Keflavík mætir Grindavík kl. 18:30 og Njarðvík mætir Snæfelli kl. 20:30.
Leikjaröðin er annars hér að neðan en hún er fengin af www.karfan.is:

Miðvikudagur 29. ágúst – leikið á Sunnubraut í Keflavík
18:30 Keflavík – Grindavík
20:30 Snæfell – Njarðvík

Fimmtudagur 30. ágúst -leikið í Ljónagryfjunni í Njarðvík
18:30 Njarðvík – Grindavík
20:30 Snæfell – Keflavík

Föstudagur 31. ágúst – leikið á Sunnubraut í Keflavík
18:30 Grindavík – Snæfell
20:30 Keflavík – Njarðvík