Formlegt opnunarmót GG á laugardaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Laugardaginn 28. júlí verður formlegt opnunarmót 18 holu vallarins á Húsatóftavelli í Grindavík. Um leið og stækkunin varð að veruleika, tóku Grindvíkingar í notkun nýjan og glæsilegan golfskála sem getur hýst allt að 100 manns í sæti.

 Það er því með mikilli gleði að Golfklúbbur Grindavíkur er þar með kominn í flokk með stærri klúbbum landsins með því að geta boðið upp á glæsilegan 18 holu golfvöll ásamt klúbbhúsi sem getur tekið við sífellt fjölgandi gestakomum.

Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin með forgjöf og efsta sætið án forgjafar.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holunum.
Súpa og hressing fyrir leik.
Teiggjafir í upphafi móts.
Léttar veitingar við lok móts.

Verðlaun: 
3 x 10 kg Fiskafurðir frá Þorbirni ehf.
2 x 5 kg af Fiskafurðum frá Einhamar Seafood ehf.
2 x Fjölskylduárskort frá Bláa Lóninu
2 x Ferð fyrir einn til London eða Kaupmannahafnar frá Iceland Express
2 x 10.000 gjafabréf á Salthúsið restaurant, Grindavík
2x fríspil fyrir tvo á Húsatóftavöll.
2x fríspil fyrir tvo í Grafarholtið
5 x gjafsett af sælgæti frá GÓU
3 x KAI Purekomachi hnífasett frá ProGastro
USB lyklar, fjölnota vasahnífar, thermobrúsar ofl. frá N1

Verð kr. 5.000

Umsagnir um Húsatóftavöll: 
“Magnaðar flatir, eins og að leika á velli erlendis” 
“Fjölbreyttur og skemmtilegur völlur” 
“Ótrúlega skemmtilegur völlur og flatirnar þær bestu sem ég hef leikið á hér á landi”
“Að pútta á flötunum er eins og að pútta erlendis – alveg magnað”
“Völlurinn kom mér gríðarlega á óvart – einn skemmtilegasti völlur landsins”