Stjórn Golfklúbbs Grindavíkur ásamt vallarstjóra hafa ákveðið að helgina 6.-8. júlí verði Húsatóftavöllur opinn sem 18 holu golfvöllur. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að stækka völlinn úr 13 í 18 holur. Völlurinn stækkar ennþá lengra inn í hraunið í mjög skemmtilegt landslag. Að auki eru gerðar breytingar á eldri hluta vallarins sem koma vel út.
Grunnurinn að stækkun vallarins í 18 holur var samningur GG við Grindavíkurbæ sem gerður var í maí 2008. Samkvæmt samningnum var framlag Grindavíkurbæjar til GG vegna framkvæmdanna rúmar 50 milljónir króna sem dreifðist á þriggja ára tímabil.
Þá standa yfir framkvæmdir við nýtt klúbbhús sem væntanlega verður tilbúið í sumar. GG hélt upp á 30 ára afmæli sitt í fyrra. Í GG eru rúmlega 200 félagar.
Samhliða þessu verður tekin upp rástímaskráning á golf.is sem virkar þannig: Félagar í GG hafa 3 daga fyrirvara á skráningu á meðan aðrir gestir hafa dags fyrirvara. Með þessu hverfur óvissa fyrir gesti Húsatóftavallar varðandi bókanir á völlinn og betri yfirsýn með skráningum og umferð um völlinn.