Færðu Teiti blóm

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar launuðu Teiti Örlygssyni þjálfara Stjörnunnar fyrir skjót og fagmannleg vinnubrögð þegar Ólafur Ólafsson meiddist í leik Stjörnunnar og Grindavíkur á dögunum eins og frægt er nú orðið. Teiti var færður blómvöndur fyrir leik Grindvíkinga og Þórs í gærkvöldi og áhorfendur klöppuðu honum lof í lófa.

Mynd: Víkurfréttir