Stelpurnar þurfa stuðning í oddaleiknum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Stelpurnar spila á morgun, miðvikudagskvöld, hreinan úrslitaleik við KFÍ um sæti í Iceland Express deild kvenna. Leikurinn hefst kl 19:15. Fyrstu tveir leikirnir hafa verið afar spennandi og því ljóst að allt verður lagt í sölurnar í Röstinni á morgun.

Við hvetjum alla til þess og mæta og hvetja stelpurnar til sigurs. Sæti í efstu deild er eitthvað sem stefnt var að strax í haust. Núna er komið að því að sigla þessu í höfn og þurfa stelpurnar ykkar stuðning. 

Mætum öll og látum vel í okkur heyra.