Enn einn sigurinn hjá stelpunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstúlkur sigruðu Laugdæli í B. deild kvenna í körfubolta í fyrrakvöld. Leikurinn fór fram á Laugarvatni og var sigurinn í stærri kantinum, lokatölur 31-90, Grindavík í vil.

Stelpurnar léku afar vel og var sigurinn aldrei í hættu eins og lokatölurnar gefa til kynna. Grimm vörn og hraður sóknaleikur var það sem að skilaði sigrinum. Laugdælir reyndu ýmis varnarafbrigði en Grindavíkurstelpurnar leystu það afar vel.

Stigahæst var Ingibjörg Sigurðardóttir með heil 28 stig. Berglind Anna var næst með 18 og Jeanne Lois gerði 17.

Leikjaplanið er þétt þessa dagana. Stelpurnar spila í Smáranum í dag kl 18:00. Á laugardaginn kemur Skallgrímur í heimsókn og hefst leikurinn kl. 16:00. KFÍ kemur svo og spilar á sunnudaginn kl. 12:00.