Kjöri á íþróttamanni og konu ársins 2011 í Grindavík verður lýst á gamlársdag í hófi í Hópsskóla. Rétt til að tilnefna hafa allar deildir UMFG sem og íþróttafélög í Grindavík sem eru aðilar að Íþróttabandalagi Suðurnesja. Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir þá sem léku sína fyrstu landsleiki á árinu, Íslandsmeistarar ársins verða heiðraðir og öllum deildum innan UMFG og íþróttafélögum í Grindavík sem eru innan ÍS er heimilt að tilnefna ungmenni sem hljóta svokölluð hvatningarverðlaun Afrekssjóðs Grindavíkur og UMFG og verður það tilkynnt við kjörið.
Eftirtaldir aðilar hafa verið tilnefndir:
Íþróttamaður ársins
Alexander Magnússon frá knattspyrnudeild
Bergvin Ólafarson frá ÍG
Björn Lúkas Haraldssson frá júdódeild
Davíð Arthur Friðriksson frá Golfklúbbi Grindavíkur
Ólafur Ólafsson frá körfuknattleiksdeild
Óskar Pétursson frá knattspyrnudeild
Páll Axel Vilbergsson frá körfuknattleiksdeild
Íþróttakona ársins
Anna Þórunn Guðmundsdóttir frá knattspyrnudeild
Berglind Anna Magnúsdóttir frá körfuknattleiksdeild
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir frá knattspyrnu- og kröfuknattleiksdeild
Sunneva Jóhannsdóttir frá sundeild
Svanhvít Helga Hammer frá Golfklúbbi Grindavíkur
Ylfa Rán Erlendsdóttir frá taekwondódeild.
Kjörið fer fram samkvæmt verklagsreglum sem samþykktar hafa verið að aðalstjórn UMFG og stjórn Afrekssjóðs Grindavíkur. Sjá nánar hér.
Mynd: Frá kjörinu í fyrra. Róbert Ragnarsson bæjarstjórin, Jósef Kr. Jósefsson íþróttamaður ársins og Helga Hallgrímsdóttir íþróttakona ársins.