Grindavík kom, sá, og sigraði í Suðurnesjaslagnum í Fótbolta.net mótinu í gær þegar liðið mætti Keflavík í Reykjaneshöllinni. Hetja Grindavíkur í þessum leik var hinn 17 ára Dagur Ingi Hammer Gunnarsson, en Dagur kom Grindvíkingum yfir á 6. mínútu og tvöfaldaði svo forskotið í upphafi síðari hálfleiks.
Byrjunarlið Grindavíkur: 12. Kristijan Jajalo, 6. Aron Jóhannsson, 8. Gunnar Þorsteinsson, 9. Matthías Örn Friðriksson, 10. Alexander Veigar Þórarinsson, 11. Jóhann Helgi Hannesson, 15. Nemanja Latinovic, 20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson, 21. Marinó Axel Helgason, 23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson, 25. Sigurjón Rúnarsson.
Keflavík 0 – 3 Grindavík
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (‘6)
0-2 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (’51)
0-3 Jóhann Helgi Hannesson (’79)