Grindavík tapaði sínum þriðja leik í röð í Domino’s deild karla í gærkvöldi þegar liðið sótti ÍR heim. Grindavík byrjaði leikinn betur og leiddi í hálfleik, 43-46. Dagur Kár var í miklum ham og hitti nánast að vild og þá var Sigurður Gunnar Þorsteinsson drjúgur en í seinni hálfleik snérist taflið við og heimamenn lönduðu sigri, 97-90.