Róbert Haraldsson mun ekki þjálfa Grindavíkurkonur áfram, en knattspyrnudeild UMFG sendi frá sér fréttatilkynningu um starfslok Róberts á dögunum. Róbert náði ágætum árangri með nýliða Grindavíkur í Pepsi-deild kvenna í sumar en liðið endaði í 7. sæti og komst í undanúrslit í bikarkeppninni.
Ekki hefur verið gefið út hver eftirmaður Róberts verður né til hvaða starfa Róbert mun halda.