Formenn, þjálfarar og fyrirliðar liðanna í efstu deildum karla og kvenna í körfubolta hittust á árlegum blaðamannafundi í dag og spáðu í spilin fyrir komandi tímabil. Er Grindavík spáð góðu gengi í vetur og harðri baráttu við KR um toppsætið. Fyrsti leikur liðsins er einmitt í kvöld, þegar liðið sækir Ármann heim kl. 20:00
Spáin:
1. KR 138 stig
2. Grindavík 130 stig
3. Fjölnir 99 stig
4. Þór Ak. 77 stig
5. ÍR 72 stig
6. Hamar 42 stig
7. Ármann 30 stig