Afreksæfingar hjá körfuknattleiksdeild UMFG að hefjast

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Afreksæfingar körfuknatleiksdeildar UMFG eru að hefjast á ný, en þjálfarinn í vetur verður bandaríski leikmaður meistaraflokks karla, Rashad Whack. Æfingarnar eru á þriðjudögum kl 14:00 og föstudögum kl 06:20. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir 12 ára og eldri. Iðkendur eru hvattir til þess að mæta og bæta sinn leik á afreksæfingum. Á afreksæfingum er áherslan öll á einstaklinginn og æfingar gerðar til þess að auka færni þeirra.

Rashad Whack stýrir afreksæfingunum