Golfnámskeið fyrir byrjendur hefst 9. ágúst

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Golfklúbbur Grindavíkur stendur fyrir námskeiði fyrir byrjendur í íþróttinni. Kennt verður á Húsatóftavelli og er kennari Andrea Ásgrímsdóttir, PGA golfkennari. Námskeiðið er 3 klst. (1 klst í senn) frá kl. 17:00-18:00.

Dagskrá:

1. Miðvikudagur 9. ágúst. Farið verður yfir grunnatriði golfsveiflunnar, búnað og annað sem skiptir máli.
2. Þriðjudagur 15. ágúst. Haldið áfram með grunnatriði golfsveiflunnar og stutta spilinu bætt við.
3. Miðvikudagur 16. ágúst. Unnið með grunnatriðin (sveiflan vippin og púttin).

Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur læri og þjálfi öll grunnatriði sem koma að golfsveiflunni s.s. grip, líkamsstöðu og sveifluferil ásamt stutta spilinu.

Þjálfari áskilur sér rétt til að breyta námskeiðsdagskránni í samræmi við aðstæður, aðallega veður og samsetningu hóps.

Þetta námskeið hentar fyrir byrjendur og einnig þá sem eru aðeins komnir af stað í íþróttinni en vilja skerpa á grunnatriðunum.

Nánari upplýsingar og skráning á netfanginu andreagolfkennari@gmail.com eða í síma 615-9515.