Grindvíkingar halda áfram að stækka hópinn fyrir seinni hluta Pepsi-deildar karla en hinn færeyski Renene Joensen hefur staðfest við færeyska fjölmiðla að hann hafi skrifað undir samning við Grindavík sem gildir út tímabilið. Rene, sem er 24 ára, getur leikið á báðum köntunum, jafn í bakverði og á miðju.
Fótbolti.net greindi frá:
Rene var í yngri liðum Bröndby á sínum tíma en hann lék síðan með HB í heimalandinu 2014 og 2015. Undanfarin tvö ár hefur hann verið hjá Vendsyssel í dönsku B-deildinni.
Rene hefur leikið með öllum yngri landsliðum Færeyja en hann á einnig tíu A-landsleiki að baki. Hann kom inn á sem varamaður þegar Færeyingar töpuðu gegn Sviss í undankeppni HM í síðasta mánuði.
Grindvíkingar hafa verið að styrkja leikmannahópinn í júlí glugganum en auk Rene hafa þeir Simon Smidt og Edu Cruz komið til félagsins. Smidt er kantmaður sem kom frá Fram en Edu kom aftur inn í vörn Grindvíkinga eftir dvöl í Noregi.
Grindavík er í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar en í kvöld tekur liðið á móti Víkingi Reykjavík.