Dagur, Jón Axel og Ólafur í 24 manna æfingahóp landsliðsins

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Craig Pedersen, þjálfari landsliðs karla, og aðstoðarþjálfarar hans Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, hafa valið og boðað 24 leikmenn sem munu mæta til æfinga þann 20. júlí þegar æfingar hjá landsliðinu hefjast. Grindavík á þrjá fulltrúa í hópnum, þá Dag Kár Jónsson, Jón Axel Guðmundsson og Ólaf Ólafsson.

Hópurinn verður minnkaður fljótlega niður í hóp 14 til 15 leikmanna sem æfir saman í sumar og úr honum verður endanlegt 12 manna lið valið sem heldur út til Finnlands á lokamót EM, EuroBasket 2017.

Landsliðið mun undirbúa sig fyrir EM með æfingaleikjum gegn Belgíu hér heima 27. og 29. júlí og fara í tvær æfingaferðir í ágúst fyrir brottförina til Finnlands, fyrst til Rússlands og svo til Ungverjalands og Litháens í sömu ferð. Alls verða leiknir átta æfingaleikir í sumar fyrir EM.

Æfingahópur landsliðs karla sumarið 2017 er þannig skipaður:

Axel Kárason · Tindastóll
Brynjar Þór Björnsson · KR
Dagur Kár Jónsson · Grindavík
Elvar Már Friðriksson · Barry University, USA
Gunnar Ólafsson · St. Francis University, USA
Haukur Helgi Pálsson · Cholet Basket , Frakklandi
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Jón Axel Guðmundsson · Davidson University, USA
Kári Jónsson · Drexel University, USA
Kristinn Pálsson · Marist University, USA
Kristófer Acox · KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Châlon-Reims, Frakklandi
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Pavel Ermolinskij · KR
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Arcos Albacete, Spáni
Sigtryggur Arnar Björnsson · Skallagrímur
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · AE Larissas, Grikklandi
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria Burgos, Spáni