U20 ára landslið karla í körfubolta mun í sumar taka þátt í einu stærsta verkefni yngri landsliða Íslands frá upphafi þegar liðið leikur í lokakeppni Evrópumóts U20 landsliða í A-deild í fyrsta sinn. Ingvi Þór Guðmundsson verður fulltrúi Grindavíkur í landsliðshópnum en Ingvi er á yngra ári landsliðsins.
Frá verkefninu er greint á vef kki.is:
Búið er að velja lokahóp U20 landsliðs karla fyrir sumarið en framundan er eitt stærsta verkefni yngri landsliða KKÍ frá upphafi þegar þeir fara á lokamót EM, A-deild U20 liða, í fyrsta sinn í íslenskri körfuboltasögu.
Strákarnir hafa verið við æfingar að undanförnu og var hluti þeirra einnig í landsliði karla á Smáþjóðaleikunum í byrjun júní.
Næsta verkefni þeirra verður U20-mót sem fram fer hér á landi dagana 19.-21. júní í Laugardalshöllinni. Þá koma hingað U20 lið Svía, Finna og Ísraels.
Leikinir verða tveir leikir á dag, kl. 17:00 og 20:00 og mun Ísland alltaf leika í seinni leik dagsins. Mótið verður kynnt áfram næstu daga.
Að lokum fara þeir fyrr af stað á EM til Krítar, en gríska sambandið bauð okkur að taka þátt í æfingamóti fyrir EM, ásamt Spánverjum, Ítölum og heimamönnum Grikkjum.
Sannarlega spennandi sumar framundan með mörgum af framtíðar leikmönunum Íslands innanborðs.
U20 karla er þannig skipað í sumar:
Kári Jónsson – Drexler, USA
Halldór Garðar Hermannson – Þór Þorlákshöfn
Arnór Hermannsson – KR
Kristinn Pálsson – Marist, USA
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR
Eyjólfur Ásberg Halldórsson – Skallagrímur
Snjólfur Stefánsson – Njarðvík
Snorri Vignisson – Breiðablik
Ingvi Þór Guðmundsson – Grindavík
Breki Gylfason – Haukar
Sveinbjörn Jóhannesson – Breiðablik
Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri
Þjálfari: Finnur Freyr Stefánsson
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson