Knattspyrnuskóli UMFG og Lýsis verður starfræktur í sumar. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6 – 14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða þrjú viku námskeið í júní og eitt viku námskeið í ágúst.
Á námskeiðunum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.
Námskeiðin eru:
12. júní – 16. júní
19. júní – 23. júní
26. júní – 30. júní
14. ágúst – 18. ágúst – Æft að hætti atvinnumanna.
Eldri fyrir hádegi ( 5. bekkur – 8. bekkur ) kl. 10.00 – 11.00 á gamla aðalvellinum.
Yngri eftir hádegi ( 1. bekkur – 4. bekkur ) kl. 13.00 – 14.00 við gula húsið.
Skráning á námskeiðin fer fram í síma 426-8605 á umfg@centrum.is eða á staðnum.
Verð á námskeið er 2.500 kr.
Þátttakendum verður svo boðið á veglega lokahátíð knattspyrnuskólans í lok sumars.
Umsjón með skólanum hefur Brynjar Ásgeir Guðmundsson leikmaður mfl. karla/skólastjóri skólans ásamt leikmönnum meistaraflokks karla og kvenna.