Lokahóf yngri flokka körfuknattleiksdeildar UMFG fer fram í Íþróttahúsinu miðvikudaginn 24. maí. Lokahófið verður tvískipt í ár, 1.-4.bekkur byrjar kl 17:00 og lokahóf eldri iðkenda byrjar kl 17:30. Allir iðkendur í 1.-4. bekk fá viðurkenningarskjal fyrir afrakstur vetrarins. Einstaklingsverðlaun verða veitt fyrir iðkendur í mb.11 ára – unglingaflokks.
Pylsupartý verður að lokinni verðlaunaafhendingu fyrir utan íþróttahúsið.
Körfuknattleiksdeildin veitir einstaklingsverðlaun fyrir góð gildi sem gera þau að betri leikmönnum og félagsmönnum í framtíðinni. t.d eru veittar viðurkenningar fyrir framfarir, dugnað, ástundun, jákvætt viðhorf og fleira. Verðlaunin eru misjöfn á milli flokka, en hver og einn þjálfari ákveður hvað hann vill verðlauna fyrir í sínum flokki.
Allir foreldrar sem og aðrir bæjarbúar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í gleðinni.