Bardagakappinn Björn Lúkas Haraldsson keppti í sínum fyrsta MMA bardaga í Færeyjum um helgina. Björn mætti þar Zabi Saeed (2-2 fyrir bardagann) í veltivigt. Er skemmst frá því að segja að Björn Lúkas kláraði bardagann á tæknilegu rothöggi strax í fyrstu lotu eftir að hafa náð Zabi í gólfið þar sem hann lét höggin dynja á honum þar til dómarinn stöðvaði bardagann enda voru Zabi allir bjargir bannaðar.
Hægt er að fylgja MMA ferli Björns eftir á Facebook hér – Björn Lúkas og hér er myndasafn frá bardaganum
MMA fréttir fjölluðu um bardagann en hægt er að sjá hann í heild sinni hér að neðan:
Björn Lúkas Haraldsson var rétt í þessu að vinna sinn fyrsta MMA bardaga. Björn sigraði með tæknilegu rothöggi í 1. lotu.
Björn Lúkas mætti Zabi Saeed (2-2 fyrir bardagann) í veltivigt. Þrír andstæðingar drógu sig úr bardaganum en Saeed, sem berst vanalega í léttvigt, var tilbúinn að berjast í veltivigt gegn óreyndari andstæðingi.
Björn byrjaði mjög vel og var ekki lengi að þessu. Saeed sótti grimmt snemma en Björn brást vel við og náði þessu í gólfið með góðri fellu. Saeed stóð fljótlega upp aftur og eftir smá stöðubaráttu upp við búrið náði Björn aftur fellu.
Í gólfinu var Björn ofan á í „half-guard” áður en hann komst í „mount”. Þar lét hann höggin dynja yfir andstæðingnum og var Saeed aldrei líklegur til að sleppa úr stöðunni. Dómarinn stöðvaði því bardagann og sigraði Björn með tæknilegu rothöggi í 1. lotu.
Frábær frammistaða hjá Birni í hans fyrsta MMA bardaga. Bardaganum var streymt á Facebook síðu Mjölnis og má sjá bardagann hér að neðan.