Hreinn úrslitaleikur í Mustad-höllinni í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Það verður hrein og bein úrslitastund í Mustad-höllinni kl. 19:15 þegar strákarnir okkar taka á móti Þórsurum. Bæði lið hafa unnið 2 leiki í einvíginu sem báðir hafa unnist á heimavelli. Nú verðum við því að standa vaktina og verja okkar heimavöll í kvöld, annars er leiktímabilið búið í ár!

Leikurinn hefst kl. 19:15 og reiknum við með fullu húsi af gulum og glöðum stuðningsmönnum. Körfuknattleiksdeildin ætlar að fíra upp í grillunum við Gjánna kl. 17:00 og hita mannskapinn upp með hamborgurum eins og þeim einum er lagið.

Mætum öll og áfram Grindavík!