Knattspyrnudeild UMFG gekk í gær frá samningum við hinn enska Saw Hewson, en Sam hefur leikið með FH undanfarin ár. Þar áður lék hann með Fram en er uppalinn í unglingaliði Manchester United og er því annar leikmaður Grindavíkur úr United á eftir Lee Sharpe. Hann er jafnframt annar leikmaður FH sem gengur til liðs við Grindavík á þessu ári.
Fótbolti.net fjallaði einnig um vistarskiptin:
Englendingurinn Sam Hewson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík en Fótbolti.net greindi frá því fyrr í dag að hann væri á leið til félagsins.
Hinn 28 ára gamli Hewson er miðjumaður en hann spilaði talsvert á kantinum hjá FH í sumar. Samtals lék hann tólf leiki í Pepsi-deildinni með Íslandsmeisturunum en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum.
Sam spilaði með Fram frá 2011 til 2013 áður en hann gekk í raðir FH. Áður en hann kom til Íslands var hann í varaliði Manchester United.
Grindavík fór upp úr Inkasso-deildinni í ár og spilar í Pepsi-deildinni næst sumar. Á dögunum fékk félagið Brynjar Ásgeir Guðmundsson í sínar raðir frá FH og Hewson er nú á leið sömu leið.
„Ég hef verið mjög ánægður hjá FH en ég hef verið óheppinn með meiðsli. Ég hef líka ekki spilað í minni stöðu. Stundum þarftu að leita annað og það er líklega best fyrir ferilinn minn núna,” sagði Hewson við Fótbolta.net á dögunum.