Töltmót Brimfaxa verður 20. maí

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Töltmót Brimfaxa verður haldið föstudaginn 20. maí og hefst kl. 18:00. Keppt verður í tölti (T7) í þessari röð:

Pollaflokkur (teymdir og sýna sjálf), barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, kvennaflokkur og karlaflokkur. Veitt verða verðlaun fyrir 5 efstu sætin í öllum flokkum nema í pollalfokkum en þar fá allir verðlaun.
Þáttökugjald er 1500 kr. í kvenna- og karlaflokk en frítt í yngri flokka.

Nauðsynlegt er að skrá á mótið en Raggi tekur við skráningum í síma 699-8228 og síðasti skráningardagur er mánudagskvöldið 16. maí.

Kveðja, mótanefnd Brimfaxa.