Í dag var tilkynnt um hvaða 15 leikmenn voru valdir í æfingahóp fyrir undankeppni EM í körfubolta kvenna, en lokakeppnin fer fram árið 2017. Íslenska kvennalandsliðið mun hefja keppni laugardaginn 21. nóvember. Fyrsti leikur liðsins verður í Ungverjalandi í borginni Miskolc og svo tekur við heimaleikur í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 25. nóvember gegn Slóvakíu. Þrír leikmenn Grindavíkur eru í hópnum, en það eru þær Björg Einarsdóttir, Petrúnella Skúladóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Hópinn í heild sinni má skoða á kki.is.