Sigrún Sjöfn Ámundadóttir til Grindavíkur

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Nú rétt í þessu voru að berast stórtíðindi úr kvennakörfuboltanum en einn af betri leikmönnum Íslands, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, var að skrifa undir samning við Grindavík. Sigrún hóf leik í vetur á heimaslóðum með Skallagrími þar sem hún skoraði 31,5 stig að meðaltali í leik og tók 8,5 fráköst, en hún lék í sænsku úrvalsdeildinni síðastliðinn vetur. Það er enginn vafi á því að þarna er á ferðinni gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Grindavíkurliðið sem hefur í kjölfarið sett markið hátt fyrir komandi vetur.

Í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeildinni segir:

„Stórfrétt úr kvennakörfunni!

Það er okkur Grindvíkingum gífurleg ánægja að kynna til leiks Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur. Það vita allir sem fylgjast með körfubolta hér á landi hversu öflug hún er. Þetta teljum við vera loka púslið í kvennalið okkar og stefnan ætti að teljast nokkuð augljós. Við ætlum að gera atlögu að öllum þeim titlum sem í boði eru. Við bjóðum hana velkomna til leiks.“

 

Lórenz Óli Ólason, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skrifuðu undir samninga í Gjánni núna rétt áðan.