Töltmót Brimfaxa er í dag, 29. maí

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Töltmót Brimfaxa verður haldið í dag, föstudaginn 29 maí. Mótið hefst kl. 18:00 og er fyrir alla skuldlausa félagsmenn. Athugið að skráningu er lokið.

Keppt verður í tölti (T7) í þessari röð: Pollaflokk – Barnaflokk – Unglingaflokk – Ungmennaflokk – Kvennaflokk – Karlaflokk

Veitt verða verðlaun fyrir öll sæti í yngri flokkum en þrjú efstu í kvenna- og karlaflokk.
Þáttökugjald er 1500 kr. fyrir kvenna- og karlaflokk en frítt í yngri flokka.

Eftir mót er fyrirhugað að grilla og við munum senda út nánari tilkynningu um það þegar nær dregur.

Kveðja, mótanefnd.

Mynd: Sóti.is