Grindvíkingurinn (ekki Breiðhyltingurinn) Bjarni Þórarinn Hallfreðsson tísti þessari mynd í morgun með orðunum „Grindavíkurvöllur reddy fyrir morgundaginn“. Það verður að segjast alveg eins og er að völlurinn er ansi grænn miðað við frost og kulda síðustu daga og ánægjulegt að Grindavík hefji leik á grasinu en ekki á teppi eins og sum lið neyðast til að gera. Fyrsti leikur Grindavíkur í deildinni er á morgun, laugardaginn 9. maí kl. 14:00 en þá kemur lið Fjarðabyggðar í heimsókn.