Dröfn Einarsdóttir valin í U17 ára landsliðið í knattspyrnu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Dröfn Einarsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna í knattspyrnu, hefur verið valin í U17 hóp kvenna sem leikur á undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum en leikið verður dagana 23. – 26. apríl. Mótherjarnir verða, auk heimamanna, Wales og Norður Írland. Dröfn sem fædd er 1999 lék 13 leiki í 1. deildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Óskum við þessari efnilegu knattspyrnukonu til hamingju með landsliðssætið.

Mynd (af Facebok): Inga Bjarney Óladóttir, Dröfn Einarsdóttir og Kristín Anítudóttir Mcmillan.