Grindvíkingar halda áfram að styrkja sig fyrir baráttuna í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar en knattspyrnudeildin greindi frá því á Facebook síðu sinni fyrir stundu að samið hafi verið við 24 ára spænskan bakvörð, Alejandro Jesus Blzquez Hernandez.
Af Facebook síðu knattspyrnudeildarinnar:
„Grindavík hefur samið við Alejandro Jesus Blzquez Hernandez. Alejandro er 24 ára Spánverji sem var hjá okkur á dögunum og stóð sig mjög vel. Hann æfði og spilaði einnig með okkur í æfingaferð okkar á Spáni í vikunni. Alejandro er vinstri bakvörður og vængmaður með mjög góðan spyrnufót. Við bjóðum Alejandro velkominn og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar.“