Bikarblaðið er komið út

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Bikarblað UMFG er komið út og var borið út í öll hús í bænum í gærkvöldi. Brottfluttir og aðrir velunnarar Grindavíkur geta skoðað blaðið á rafrænu formi með því að smella hér. Forsala miða á leikinn klárast núna fyrir hádegi. Hægt er að nálgast miða hjá Lindu í Palóma. Miðarnir kosta 2.000 kr. í forsölu en kosta 2.500 kr. við hurðina á leikdegi. Ágóðinn af miðum seldum hér heima rennur óskiptur til UMFG.