Grindvíkingar fóru enga frægðarför í Garðabæinn í gærkvöldi þegar þeir sóttu Stjörnumenn heim í Dominosdeild karla. Lokatölur urðu 103-78 en okkar menn köstuðu leiknum algjörlega frá sér í þriðja leikhluta sem tapaðist 30-10. Um tíma var staðan í honum 27-4. Það gekk bókstaflega ekkert upp hjá Grindavík og leikurinn í raun tapaður fyrir síðasta fjórðung.
Á karfan.is má lesa ágæta umfjöllun um leikinn, skoða helstu tilþrif frá Sporttv og skoða myndir úr leiknum. Við birtum hér umfjöllun körfunnar með góðfúslegu leyfi. Það er vonandi að okkar menn taki sig saman í andlitinu eftir þessa útreið og girði í brók fyrir næsta leik sem er heimaleikur gegn Þór frá Þorlákshöfn.
Karfan.is, umfjöllun eftir Hörð Tulinius:
,,Í Ásgarði í kvöld mættust tvö lið sem þurftu að sanna fyrir Dominosdeildinni að þau ætluðu að vera í toppbaráttunni í vetur, en ekki vandræðast með sæti í úrslitakeppninni í vor. Stjarnan tapaði sínum fyrstu tveimur leikjum, sá fyrri heima gegn Spútnik liði deildarinnar Tindastóli og sá seinni í Keflavík. Grindavík hins vegar var með einn tapleik og einn sigurleik undir beltinu fyrir leikinn í kvöld. Töpuðu fyrir Haukum á Ásvöllum í fyrsta leik en unnu Skallagrím sannfærandi í Grindavík. Þar áður höfðu þeir tapað illa í leik gegn KR um meistara meistaranna svo þessi leikur var mjög mikilvægur fyrir gestina engu að síður.
Lítið fór fyrir varnarleik í fyrri hálfleik en honum lauk í stöðunni 53-48 fyrir Stjörnunni. Bæði lið skutu afburðavel í fyrsta hluta en mikill ruslabolti var spilaður í öðrum, þar sem Grindavík tapaði boltanum 7 sinnum. Grindavík nýtti einnig illa færi sín undir körfunni en hitt vel fyrir utan eða 5/12 í þriggja stiga skotum í fyrri hálfleik.
Þegar um 6 mínútur voru eftir af öðrum hluta fór að bera á pirringi gestanna á góðum varnarleik Stjörnunnar og eigin úrræðaleysi í sókninni. Jóhann Árni fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu og tæknivillu strax á eftir fyrir að láta boltann skoppa í Leif Garðarsson, dómara leiksins. Vitleysisáherslur í dómgæslu NBA deildarinnar sem virðast hafa smitast yfir til Íslands.
Grindavík skoraði aðeins 2 stig á fyrstu 5 mínútunum í seinni hálfleik á meðan Stjarnan sallaði niður 16. Andlegt og móralskt gjaldþrot blasti við gestunum í þriðja hluta. Jóhann Árni gerði sig sekann um aðra óíþróttamannslega villu og var hent út úr húsi. Í kjölfarið fylgdi aragrúi af tæknivillum og tök dómaranna á leiknum engin. Staðan var 83-58 í lok 3. hluta og leikurinn í sjálfu sér tapaður.
Restin af leiknum einkenndist af örþrifaráðum Grindavíkur fyrstu mínúturnar þar sem þriggja stiga skotum var hent upp í gríð og erg, eða að meðaltali 1 á hverri mínútu. Pick&Roll vörn Grindavíkur var í molum og Stjarnan nýtti sér það hið ítrasta. Leikur Grindavíkur kristallaðist í einu augnabliki þegar varamaður Grindvíkinga skaut þriggja stiga skoti sem fór 4-5 hringi í körfunni og þaut svo upp úr – agaleysi og andlegt þrot í bland við ítrekaða óheppni.
Öruggur og jafnframt mjög mikilvægur 103-78 sigur Stjörnunnar var svo staðreynd þegar flautan gall í lok leiks.
Það virtist ekki angra Stjörnumenn að besti leikstjórnandi þeirra, Justin Shouse var frá annan leikinn í röð, en hann glímir við meiðsli. Dagur Kár og Jarrid Frye stóðu leikstjórnendavaktina með sóma.
Mikið var um tilþrif í leiknum en Ólafur Ólafsson tróð boltanum í fyrsta leikhluta beint í frákasti yfir þrjá leikmenn Stjörnunna og stoppaði svo hraðaupphlaup Stjörnunnar strax á eftir með því að smyrja sniðskoti Dags Kár í spjaldið. Dagur Kár lét heldur ekki sitt eftir liggja heldur tróð framan í Joel Haywood sem ætlaði að stöðva hraðaupphlaup Dags en endaði með leðrið í andlitinu. Sjáið öll helstu tilþrif leiksins hér í myndbandi frá SportTV.
Jarrid Frye var frábær fyrir Stjörnuna með 21 stig og 14 fráköst. Marvin Valdimarsson bætti við 20 stigum í 9/14 nýtingu og 6 fráköstum. Dagur Kár átti frábæran leik fyrir sína menn með 17 stigum þó hann hafi verið að hitta illa. Hann hins vegar bætti við 6 stoðsendingum og tapaði aðeins 2 boltum.
Fátt um fína drætti hjá Grindvíkingum en þar leiddi Oddur Rúnar Kristjánsson með 17 stig og 7/14 í skotum. Hann spilaði aðeins 23 mínútur og hefði mátt spila meira að mati undiritaðs. Joel Haywood var arfaslakur í leiknum þó hann hafi halað inn 13 stigum en hann skauta alls 4/11. Ólafur Ólafsson setti 13 stig einnig og bætti við 8 fráköstum auk þess sem Ómar Örn setti einnig 13 og tók 11 fráköst, þar af 6 í sókn.”
Mynd, karfan.is, Snorri Örn Arnaldsson